14.4.2007 | 12:19
Afríka heillar
Ég hef lesið greinar Elizu og mér finnst það mikið hugrekki af henni að ferðast ein um Vestur-Afríku í 7 vikur til þess að færa okkur ferðasögu sína. Var sjálfur í Nigeríu í desember s.l. og það var mikil upplifun en eins og sagt var við mig áður en ég fór þangað "þá eru það forréttindi að fá að fara til Afríku" Dvaldi í Abuja höfuðborg Nígeriu og fór til Lagos sem er fjórða stærsta borga heims samkvæmt upplýsingum heimamann. Þessi ferð mín til Nigeríu var mikil upplifun og þangað mun ég örugglega fara aftur fljótlega. Ég tek undir það sem Eliza segir og hvert alla sem geta til að fara til Afríku og ég þakka henni fyrir greinarnar í Mogganum og bíð spenntur eftir síðustu greinnin.
björninn
|
Ferðasaga frá Vestur-Afríku í myndum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
9.3.2007 | 18:08
Stórt framfaraskref í rafheimi - mitt fyrsta rafræna skilríki
Í gær fékk ég mitt fyrsta rafræna skilríki á sýningunni "tækni og vit" og er ég búinn að bíða lengi eftir þessari stundu. Ég er búinn að bíða í 5 ár eftir þessu skilríki en þegar ég ákvað að starfa sem sjálfstæður ráðgjafi á sviði upplýsingatæknimála var þegar orðin mikil þörf á rafrænu skilríkjum. En góðir hlutir gerast hægt og nú verður bylting í rafheimi þar sem hægt er að tryggja á einfaldan hátt hver sé þar á ferð.
Hvernig eru rafræn skilríki notuð og af hverju eru þetta svona merkileg tíðindi. Rafræn skilríki eru fyrst og fremst til þess að veita aðgang í rafheimi á öruggan hátt auk þess sem hægt er að skrifa undir skjöl rafrænt. Nú er tími aðgangsorða og lykilorða á bak og burt - með einföldum hætti er hægt að fá aðgang að öllum vefsíðum sem veita aðgang með rafrænu skilríki með einu lykilorði. Það mikilvægast hér að mínu mati er að nú er hægt að skrifa undir skjöl rafrænt en það opnar alvega nýjar víddir í samskiptum á netinu. Fólk og fyrirtæki geta sent undirrituðu skjöl rafrænt. Þannig er hægt m.a. að stytta afgreiðslutíma ýmissa erinda auk þess sem ferðum fólks á stofnanir með skjöl fram og til baka heyrir brátt sögunni til.
Bankarnir í samstarfi við hið opinbera mun gefa út rafræn skilríki nú í haust til allar debetkorthafa þannig að flestir Íslendingar ættu að vera komnir með rafrænt skilríki í byrjun næsta árs. Mikilvægt er því að fyrirtæki og opinberir aðila fara nú strax að hug að þessum málum og aðlaga þjónustu sína þessari nýju tækni. Þegar eru nokkrar stofnanir byrjaðar (sjá skilríki.is) og má t.d. nefna vef Ríkisskattstjóra en þar er nú hægt að fá staðfest afrit af skattframtali einstaklinga ef viðkomandi skráir sig inn með rafrænu skilríki – frábær þjónusta og gott dæmi um hvað þessi nýja tækni býður upp á.
UT-dagurinn var í gær en á ráðstefnu sem bar heitið "Nýtum tímann - Notum tæknina" var lögð áhersla á rafræna stjórnsýslur - opinberrar stofnanir og sveitarfélög leggja sífellt meiri áherslu á að bæta aðgengi að þjónustu á vefsvæðum sínum. Fram kom á ráðstefnunni að rafræn skilríki gegna hér lykilhlutverki þar sem hægt er að bæta þjónustuna t.d. með því að ganga frá afgreiðslu mála s.s. umsóknum ýmiskonar algjörlega í rafheimi. Til þess að þetta sé hægt þá verða notendur að geta skrifað undir skjöl / umsóknir rafrænt á öruggan hátt. Hægt er að nálgast fyrirlestra á ráðstefnunni á vef UT-dagsins en ég vil sérstaklega benda á fyrirlestur Haraldar Sverrissonar, skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins og Sæmundar Sæmundssonar, stjórnarformanns Auðkennis en þar er kemur ágætlega fram um hvað málið snýst og ávinning þess að taka upp rafræn skilríki (sjá fyrirlestur á netinu mín 117)
Rétt er að hrósa mbl.is fyrir það framtak að þeir sem eru handhafar rafræns skilríkis fá mánaðar áskrift frítt á netinu – þetta er frábær stuðningur við þetta mikilvæga verkefni. Hægt er að fá útgefið rafrænt skilríki á sýningunni tækni og vit í Kópavogi sem nú stendur yfir fram á sunnudag. Ég hvet alla sem áhuga að fara á sýninguna tækni og vit verða sér úti um skilríki og prófa – gangi ykkur vel.
“hittumst í rafheimi á öruggan hátt”
björninn
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.3.2007 kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2007 | 23:27
Fyrsta bloggið mitt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

